Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Fiskur

Veit greinilega allt um fisk.  Alla veganna góðan fisk.?????Alien
mbl.is Ráðherraskipti í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Krapi

Ég veit að það var alt hvítt við Kárahnjúka í morgun, fékk hringingu frá sementsflutningamanni sem var þar á ferð.Joyful
mbl.is Varað við krapa á fjallvegum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

53. Ljóð Stöðnun

Höfundur: Guðmundur Árni Valgeirsson

Auðbrekku

f: 11.11.1923  d: 17.04.1976 

 

STÖÐNUN

 

Á ströndinni við Staðarhól

stígur fjöldinn erfið spor,

því ævintýrið unga og mikla

er aðeins glatað vor.

Þar hefur margur góður gestur

gjör - fallið úr hor.

 

Á langri göngu lífið hefur

leikið suma grátt,

látið alla í duftið detta,

þá dagurinn reis hátt.

Það hafa ekki heldur allir

haldið í rétta átt.

 

Morgunstjarnan mistri hulin

margan knapann sveik af leið.

Til glætunnar sem hann glóði í

með geysi hraða áfram reið,

þar skógar eldur aðeins brann

og eftir honum beið.

 

Sviðin jörð og svörður skafinn,

sviptur allri frjórri mold,

foksands öldum undir grafinn,

eins og rotið hold.

Brunnir stofnar bera ekki

blómin á fold.

 

Stoppaðu aldrei við Staðarhól,

þar stálgrindur lokast beggja megin,

og slagbrandar verða slegnir fyrir,

sleggjan til afls í höggi veginn,

sporin staðna á strönd þess liðna

storknuð og slegin.

 


52. Ljóð Stjörnuhrap

Höfundur: Guðmundur Árni Valgeirsson 

Auðbrekku

f: 11.11.1923  d: 17.04.1976

 

STJÖRNUHRÖP

 

Fallandi stjörnur í flokkum hrapa,

því vegurinn er að vinna og tapa.

 

Sumar brotna við síðasta tanga,

þar er lögmál alls, það er lífsins ganga.

 

Aðrar falla í fyrstu lotu,

það minnir sjómann á síldar hrotu.

 

Þær tínast um eilífð á tæpum degi

og sjást hvorki framar á láði né legi.

 

Þó leita sé víða og lengi á vorin

finnast alls ekki fyrstu sporin.

 

Þá stynja þeir upp sem um ströndina reika,

var þessi stjarna í veruleika?

 

Ofursólir menn andlaust finna,

með geisla sterka sem gleypa hinna.

 

Er stígur að morgni í miklum ljóma,

við dulúðar blæ og daggar óma.

 

Ljóminn dvín þegar degi hallar,

þá sökkva í djúpið sólir allar.

 

Dagarnir verða oft dimmir að kveldi,

því heimurinn logar í húmsins eldi.

 

En það er hinn fúni og veiki viður,

sem bíður þess aðeins að brotna niður.

 


30 dagar

Verður tilræðismaðurinn leiddur fyrir Héraðsdóm Austurlands þar sem hann má búast við því að fá 30 daga skilorð ef dæmt verður í september.Devil
mbl.is Telpa fannst höfuðkúpubrotin í undirgöngum í Danmörku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

30 dagar á Skilorði

Þetta er nú svo mikið bull að það er ekki einu sinni hægt að blogga um það.W00t
mbl.is Skilorðsbundið fangelsi fyrir árás á konu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Hilmar Guðmundsson
Hilmar Guðmundsson
Málefni fatlaðra og aldraðra er mér ofarlega í huga.

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband