Bloggfćrslur mánađarins, febrúar 2020
6.2.2020 | 16:07
Eftir pabba
Eftir Pabba
Oft hef ég setiđ ađ sumbli,
svalar og langar nćtur.
Ćđaslátt útlagans fundiđ
og ylinn viđ hjartarćtur.
Drekkt mínum sorgum og draumum,
í drekans eitruđu veigum.
Látiđ ţćr líđa um hálsinn,
í löngum og stórum teygum.
Haldiđ ađ ég vćri hetja,
hćfari flestum mönnum,
og gleymt ţví hve grátlega lítiđ
ég gat mitt í dagsins önnum.
Fundist andi minn fleygur
og frjór í sköpunarmćtti.
Ţó aldrei eins andlega dauđur
minn óđur međ fölskum hćtti.
Svifiđ í sefjunar böndum,
séđ varla birtuskilin.
Hent mér aftur og aftur
endilöngum í hylinn.
Sá blekkingar hylur er blendinn,
ţví böđullinn stendur viđ ósinn.
En Bakkus á bakkanum glottir
bjartari en norđurljósin.
Hann seiđir sveina og meyjar
međ sínum glitrandi veigum.
Ţau brosandi brennda drykkinn
byrgja í stórum teigum.
Lífiđ ţeim virđist leikur
međan logandi veigarnar skína.
En svo ţegar lengra frá líđur,
fer ljóminn af ţeim ađ dvína.
Ef samviskan sífrar ađ morgni
og sálin er mettuđ af klíju.
Ţá bikarinn bjarta viđ tökum
og byrjum ađ drekka ađ nýju.
Ađ feigđarósi viđ fljótum
flýjandi okkur sjálfa.
En samviskan segir ţiđ eigiđ
ađ sitja heima og skjálfa.
En samt viđ í fávisku flýjum,
á flóttanum nötrum og skjálfum.
Hlaupum svo hratt ađ viđ sjáum
í hnakkann á okkur sjálfum.
Ađ henda sér niđur í hylinn
held ég sé lítill vandi.
En svolítiđ ţarf meiri seiglu
til ađ koma sér aftur ađ landi.
Höf. Guđmundur Valgeirsson.
frá Auđbrekku
Bloggvinir
Eldri fćrslur
2020
2016
2015
2014
2013
2012
2011
2010
2009
2008
2007
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annađ
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfćrt á 3 mín. fresti.
Skýringar