Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007

Óvæntir gestir

Þeir hafa þá nóg að orða þarna í Kína.

Ég sá heimildarmynd þar sem sýnd er veiði á mýrarrottum og þær svo steiktar og étnar.


mbl.is Óvæntir gestir með flóðunum í Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flest gerir maður

nú erum við byrjuð að læra sænsku til að geta talað við tengdafólk Gumma á þeirra máli því að ætla að tala um allt á ensku við (við erum illa talandi á ensku og sum af þeim líka) þau um alla hluti gengur bara ekki upp.

Við stefnum á að fara út næsta sumar og verða kannski í mánuð eða svo, það kemur í ljós síðar.

Sumarið ætlar ekki að vera merkilegt hér á norðurlandi (við ströndina alla veganna), en lengi er von á einum sólardegi.

Lítið hefur orðið um útilegur en sem komið er og er það veðri um að kenna, því hitinn verður að vera yfir 10 gráður til að maður nenni að fara af stað.

Við ætlum alla veganna að fara vestur þegar Gummi og Stína koma til landsins, en von er á þeim 4 ágúst.

Linda Rós kemur á föstudaginn og verður hjá okkur í viku eða svo, kannski förum við eitthvað með hana og notum vagninn ef fortjaldið verður komið, en því seinkar eitthvað, átti að koma á föstudaginn síðasta.

Ekki meira röfl að sinni.


Óó

Hélt hann væri í tölvunni að leika Need for Speed eða jafnvel driver.Devil
mbl.is Ökumaður yfirbugaður eftir hraðakstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmæli

Í gær 5.7. var okkur boðið í afmæli hjá Jonna (Jónatan) sem var hálf níræður (45 ára).  Blessaður kallinn er farinn af stað niður brekkuna.

Veislan var í húsi Hvítasunnukirkjunnar og var mannmargt nokkuð.

Fín veisla sem Eygló stóð fyrir (kannski of trúað fyrir minn smekk sem er náttúrlega algert aukaatriði) og fórst henni þetta bara vel úr hendi.

Að loknum ræðuhöldum og söng var boðið upp á kaffi og kökur.  Ekki var annað að sjá en allir ættu góða stund saman.

Til hamingju með aldurinn Jonni og passaðu þig á hallanum sem framundan er.


Tjörublæðingar????

Blæðing er úr blóði en ekki tjöru eða neinu öðrum vökva. 

Skrýtið að nota þetta orð blæðing (blóð sem lekur).  Maður notar ekki blæðing um vatn, bensín eða olíu.

Af hverju þá tjöru???? Halo


mbl.is Tjörublæðingar á Þingvallavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veiða

fleiri Hrefnur og aðra hvali til að þurfa ekki að skera niður þorskveiði.Whistling
mbl.is Segja hrefnurnar fullar af þorski og ýsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umferð

Er ekki kominn tími á að setja hringtorg eða umferðaljós við Vesturlandsveg og Þingvallaveg?  Ekki lítur út fyrir að þessi gatnamót lagist eitthvað í bráð.
mbl.is Umferð í átt til höfuðborgarinnar gengur vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útilega

Fórum í útilegu á föstudag í fínu veðri, en um nótina var svo kalt að það hélaði á bílum. 

Á laugardag var líka got veður fram eftir degi en þá gekk hann í norðan og kólnaði snöggt.

Um miðnætti var orðið skítkalt og við ákváðum að taka saman og fara í bæinn.

Í dag var okkur svo boðið í grill á Öndólfstaði og fengum við þetta líka fína nautakjöt.  Við sátum og spjölluðum fram eftir degi en á sjöunda tímanum var lagt af stað í bæinn.

Þökkum fyrir góðan mat og gott spjall.


« Fyrri síða

Höfundur

Hilmar Guðmundsson
Hilmar Guðmundsson
Málefni fatlaðra og aldraðra er mér ofarlega í huga.

Bloggvinir

Feb. 2025
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.2.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband